Já, krakka mínir ótrúlegt en satt þá er Dísa er orðin stór og flutt til Norge

Nú hef ég verið hér í Sandefjord í 10 daga og er alveg að meta það. Þetta er frekar lítill bær c.a 2 tímum frá Oslo. Hér er endalust heitt og sól! sem er æði því þá hættir sólarlandalöngunin! því hér er um 30 stig á hverjum degi í skugga! enda ekkert hægt að sofa á nóttunni!
Hér eru allar búðirnar sem maður þarf, Bianco, Gina, H&M, BikBok ofl. Þannig að Dísa eru búin að vera frekar dúleg að vera góð við sjálfa sig

Það er reyndar alveg FFFÖÖKKK dýrt hérna! einnbjór kostar c.a 1000-1100 kall ísl! en það er líka mjög hár skattur á áfengi, tóbaki og sælgæti hér í landi. (Eitthvað sem íslendingar eru að taka sér til fyrir myndar....)
Vinnan er ágæt. Er að vinna færibandavinnu þannig að það er ekkert spes!
- samt mikið af fínu fólki sem maður vinnur með, allra þjóða kvikindi! á einn vin í vinnunni (f/ utan Mögnu frænku hehhee...) sem heitir Zamel og er Íraki, mega skemmtilegur þannig að dagurinn líður hratt þegar maður er með honum.
En ætli besti parturinn sé ekki eftir vinnu að liggja úti í sólinni og drekka bjór úti á sólbekk

Norska - Danska. Næstum the same shit! þannig að það var gott að maður lærði dönskuna hérna í denn! haha... annars blanda ég bara íslensku, dönsku og ensku og þá kemur eitthvað sniðugt út

Eitt að lokum kæru stúlkur, fyrir ykkur sem eru single þá er FOKKING veisla hérna meginn I´f you know what I mean

TJÁ!